20 mars

19.3

Sorgar dagur í gær fyrir gítarleikara. 19 mars dó Paul Koshoff og Randy Rhoads. Ég er mikill aðdáandi Randy Rhoads, hann dó í flugslysi. Tók einungis upp tvær plötur með Ozzy áður en hann fór. Ótrúlegt hvað sumir geta afrekað á stuttum tíma. Hérna er Ozzy að hlusta á sóló sem Randy spilaði. :)

Hérna er Paul Kosoff sá mikli snillingur, hann lést úr ofneyslu.

Jæja kem með eitthvað meira á eftir, vinnan kallar.

Categories: Almennt blogg
Tags:
13 mars

Sumar

Sjáið þetta fyrir ykkur, ég keyrandi í vinnuna í morgunn, einstaklega hress, spáði í því afhverju, klukkan var jú fyrir klukkan 8:00. Svo allt í einu þá kemur One á fóninn frá Metallicu, kallinn byrjar að syngja með, rokkarinn sko. Allt er að verða vitlaust í bílnum, það er bjart, ágætlega hlýtt og enginn snjór, greinilega að koma sumar, ohh snilld ! Okey hvað er nýtt, kallinn er allur að koma til á gítarinn, er farinn að spila grimmt og stefni á útrás á árinu. Kannski Jimmy Page hringi í mig og biðji mig um ráð, aldrei að vita. :) Stefnan er sett á Gís í haust, vonandi kemst ég þar að, væri gaman að gera það sem maður elskar.

Hérna er One frá Metallicu, ef ykkur langar að upplifa stuðið í bílnum, spólið þá á 3:33 sirka, skilyrði er að pumpast allur upp og skrúfa niður rúðuna, ef þú ert ekki í bíl, hlauptu að næsta bíl og skrúfaðu niður rúðuna. Ef einhver er í bílnum og horfir á þig eins og þú sért geðsjúklingur segðu þá, “One maður, syngja með”. Það virkar án vafa ekki svo byrjaðu bara að dansa á staðnum, taktu Teknó víkinginn á þetta.

Fyrir þá sem þekkja ekki vin minn Teknó víkinginn þá er hann hér, svona skuluð þið byrja að dansa ef manneskjan sem átti gluggann verður brjáluð, þá bakkar hún og hringir í 112, munið að segja One af og til.
Hann er ekki mjög hress í byrjun en þegar hann fær vatn þá hressist hann allur við. :)

Hérna er One…. ONE !…. Eða betur þekkt á Íslandi sem one. Einhver frá Blöndósi segir eflaust lagið Einn með Metallicu en það myndi rugla ykkur, hann er ekki einn í þessu lagi.

Categories: Almennt blogg
Tags:
06 mars

Making music..

Ég hef verið rosalega lítið í blogginu undanfarið, ástæðan fyrir því er að ég hef verið rosalega djúpt sokkinn í gítar-heiminn minn. Hélt að enginn hefði áhuga á því svo ég sleppti að blogga um það. :) Til að halda þessu lifandi þá ætla ég bara að hrúga inn efni sem ég fýla og er að spá í, hvort sem þið hafið áhuga á því eða ekki. Múhaha. Ég er byrjaður að taka upp eitt lag sem Áslaug er búin að biðja mig um að taka upp í tvö ár sirka. Vonandi gengur það ágætlega. Ég er hress ekkert stress en smá stress því ég var að verða 32 ára, best að fara að rúlla þessum bolta, gera eitthvað með lífið það sem maður hefur gaman af er það ekki ?

Ég er að spá mikið í myndavél um þessa mundir, til að taka upp tónlistina upp í kirkju, líka sjálfan mig, ef einhver þekkir Panasonic GH2 vélina þá endilega sendið mér póst. Þessi vetur ætlar ekki að deyja, hvað er málið ? Kannski ég taki bara íslendinginn á þetta og taki utanlandsferð fyrir Áslaugu á yfirdrætti :) Hún er að klepra á þessu. Kannski ódýrara að kaupa hitapoka ? Allaveganna þá kallar vinnan.

Þetta er uppáhaldsgítarleikarinn minn akkurat núna, frábær persónuleiki, frá Kanada og virkilega góður. Búinn að vera að spila með Jon Bon Jovi, Randy Jackson og mörgum, mörgum mörgum fleirum. Þegar hann hefur tíma þá gefur hann reviews á gítörum sem eru til sölu, virkilega skemmtileg, hérna er eitt.

STAY FROSTY !

Categories: Almennt blogg
Tags:
02 mars

Van Halen

Uff ný plata með Van Halen. YESSSssss og David Lee Roth að syngja, ekki Sammy. Sammy er góður en hann er ekki original Van Halen. Ég er búinn að hlusta á alla plötuna núna þrisvar og eru öll lögin góð. Ótrúlegt hvað Eddie er enn góður á gítarinn. Hérna er eflaust mest commercial lagið:

Mér finnst þetta lag skemmtilegast eins og er, þvílíkur gítarleikari…. :)

Categories: Almennt blogg
Tags:
01 mars

Allt vitlaust

Daginn góðir hálsar, yndislegur þessi snjór finnst ykkur ekki ? Ég sem var farinn að finna lyktina af vorinu, fór út í körfubolta um daginn. Var meir að segja á leiðinni með hjólið mitt niður í Örninn í viðgerð. Svo kemur þessi yndislegi snjór, eitt sem ég skil ekki, það er búinn að vera 83 fet af snjó í allan vetur. Í gær byrjaði að snjóa aftur og það var eins og allir ökumenn landsins fengu andlegt áfall og keyrðu um á 5km hraða ? Ég var klukkutíma á leiðinni heim, sú leið er 9,8 km. Þetta var eins og að búa aftur í L.A. Ahhhh L.A, sól, hiti…. grátur. :( Allaveganna, best að kippa sér útur þeim draumaheimi, maður hefur ekki einu sinni efni á helgarferð með frúnni til Luxembourg hvað þá til L.A.

Hafið þið tekið eftir því að þið ákveðið eitthvað og viljið það mjög mikið, hugsið um það mörgum sinnum á dag hvað þið ætlið að gera þetta og breyta þessu en síðan er vinnan búin, dagurinn liðinn, gefa krökkunum að borða, leika við þau, koma þeim í rúmið og svooooo þegar þið ætlið að gera það sem þið viljið raunverulega vera að gera þá er einhver ömurleg rödd sem kemur upp í hugann. Uss þú ert svo þreyttur, sestu í stólinn/sófann og horfðu á einhvern þátt eða bíómynd, slakaðu á með smá kók og snakki. Hmmm hljómar vel, ég byrja bara á morgunn.

Categories: Almennt blogg
Tags:
22 feb.

Tilveran

Ég hef lengi haldið upp á þennan söngvara, Aaron Lewis en hann er frægur fyrir að hafa verið söngvarinn í Staind. Ég hef alltaf haldið upp á þetta lag, Jeffrey Steele samdi það árið 2003 en árið 2007 þá deyr sonur hans sem var 13 ára í bakgarðinum hjá þeim í fjórhjóla slysi og þá tók lagið á sig aðra meiningu hjá honum og öðrum. Þegar ég sé Jeffrey syngja lagið þá upplifir maður að það er mikið á bakvið lagið og það eru oftast bestu lögin finnst mér.
Hérna er Jeffrey Steele að taka lagið, spólið að 1:30 þá byrjar lagið.

Hérna er Aaron Lewis að syngja það, gaman að sjá þungarokkara taka þetta og hann gerir þetta rosalega vel, must watch…
Spólið að mínútu 4:30, þá byrjar lagið.

Categories: Almennt blogg
Tags:
21 feb.

Bloggið

Blogg blogganna er að koma. Ég hef einhvernveginn ekki fundið fyrir miklum innblæstri með 800 kaloríur á dag. Djók ég hef ekki hugmynd um hvað ég er að innbyrða af kaloríum en það er eitthvað, slatti í ávöxtunum. Hver er staðan ? Ég hætti að blogga á föstudaginn ef ég hugsa rétt. Verð að játa að föstudagurinn og laugardagurinn voru rosalega erfiðir fyrir mig. Ég er var mjög “físískt” svangur, ekki bara í huganum, held samt að hugurinn spili inn í þetta. Ég drakk meira á föstudaginn en einhvern annan dag, líkaminn var líka mjög svangur eftir tvær æfingar. Áslaug sem betur fer var mjög sterk á föstudag/laugardag, ég vældi svo mikið að það endaði í rifrildi á laugardagskvöldið, eflaust búin að fá nóg. Viti menn á sunnudeginum þá snérist þetta við. Ég hef alltaf borðað mjög lítið á sunnudögum en þá vildi mín fá allt á milli himins og jarðar, þegar ég segi að hún hafi næstum því farið að gráta þá er ég ekki að ýkja.

Fólk sem les þetta er eflaust að spá, afhverju eruð þið að gera þetta, leggja þetta á ykkur og hvernig líður ykkur ? Fyrir mitt leyti þá líður mér betur, er búinn að missa 8kg og nei það er ekki bara vatn :) Er mun rólegri í hausnum, venjulega þá ræð ég illa við að fókusera almennilega og hugsanir hlaupa útum víðan völl, nei ég er ekki með adhd bull bara mikið kaffi, gos og slæmt mataræði. Ég er betri í samskiptum við aðra, nema konuna mína greinilega. Ég gæti aldrei haldið þetta út í 30 til 60 daga eins og sumir en þetta er gott “reboot” á kerfinu. Núna finnst mér auðveldara að halda að ég geti farið undir 100kg og ég fattaði líka hversu lítið við þurfum að borða, ég er að borða miklu meira en líkaminn þarf í raun og veru. Já mér er farið að hlakka til fimmtudagsins, ég og Áslaug erum alveg komin með upp í kok af safa og að íbúðin okkar lykti eins og grænmetis/ávaxtarmarkaður :)

Í gær var bolludagurinn, það reyndi dálítið á mann, allir að fá sér bollur, í dag er afmælið hennar Áslaugar, TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ! Svo það er erfitt að fá sér ekkert. :( Á morgunn er sprengidagur og ég fastur á einhverri ráðstefnu í 8 tíma þar sem er hlaðborð af gúrme morgunmat og svo fínn hádegismatur. Þannig þegar maður er nett svangur og er að hugsa mikið um mat þá eru svona litlir hlutir sem geta orðið frekar stórir í hausnum á mér. Núna er áttundi dagurinn, tíminn líður hægt, hehe en þetta er að klárast.

Kveðja. Grumpy garnagaulíus.

Categories: Almennt blogg
Tags:
17 feb.

Safakúr dagur 4

Góðan daginn góðir hálsar. Dagur fjögur, hvað er að frétta ? Þetta hljómaði dálítið eins og útvarpsmaður á FM-957. EN hvað er að frétta ? :) Dagurinn í gær var góður, drakk um morguninn engifer, sítrónu og pipar í heitt vatn. Hef gert það síðan ég byrjaði í þessu. Áslaug er svo sniðug að gera svona drykki fyrir mig. Reyndar er hún í eldhúsinu hálfan daginn liggur við, býr til alla safana fyrir mig. Gæti þetta pottþétt ekki án hennar. Eftir engiferið þá fékk ég mér ávaxta safa. Svo í hádeginu var það grænmetissafinn, held minnst upp á hann, eins og að drekka gras.

Um klukkan þrjú fór ég í Maður Lifandi og fékk mér safa þar, svo man ég ekki meira, drakk eflaust minnst 1 og hálfan líter af safa í viðbót. Eins og ég segi þá er þetta full time job hjá Áslaugu að halda mér gangandi. Tók líka tvær æfingar í gær, körfubolta æfingu í 90 mínútur og svo fótbolta æfingu í 50 mínútur. Þannig það þarf að innbyrða dálítið til að halda þessu flikki gangandi. :)

Dagur 5 í dag, vonandi verður það ekki erfitt, aðalega hausinn á manni sem fer að trufla mig í kvöld, vanur að fá sér gúrme skyndibita/kók og súkkulaði á föstudagskvöldi en ég held áfram að drekka safann. Reyndar ótrúlegt hversu mikið af grænmeti og ávöxtum ég er að borða yfir daginn með að djúsa þá svona, þarf að taka mynd af því við tækifæri og sýna ykkur.

Over and out – Grasmaðurinn.

Categories: Almennt blogg
Tags:
16 feb.

Winning

Ég hef verið að sýna svo mikið af vídeóum þar sem fólk er fífl, núna er kominn tími á að sýna að við fólkið gerum stundum eitthvað sem tekst. :)

Categories: Almennt blogg
Tags:
16 feb.

Safakúr dagur 3

Dagur þrjú, allt að gerast. Smá “recap” eins og við rithöfundarnir segjum, dagur eitt, hræðilegur, mikinn hausverk, slappur og vildi borða allt sem hægt er að tyggja. Dagur tvö, töluvert betri, hausverkur farinn, aðeins meiri orka en dálítið svangur. Dagur 3 da da ra, meiri orka en á degi tvö, enginn hausverkur en aftur á móti dálítið svangur. Fór á körfuboltaæfingu í gærkvöldi, gekk mjög vel og fín orka en ég tognaði á hægri kálfanum. Ömurlegt þar sem það er æfing í kvöld, ætla að reyna að harka af mér því það verður valið í liðið fyrir næsta sunnudag í kvöld.

Spurning hvernig dagurinn í dag verður, dagur fjögur, hann leggst vel í mig, verður eflaust erfiðara um helgina þegar við erum vön að fá okkur pizzu eða einhvern skyndibita og nammi. Eru sjö dagar eftir svo þetta styttist alltaf, annars náðist mynd af mér eftir kúrinn… uff.

Categories: Almennt blogg
Tags: